Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar
1982 nr. 12 11. mars
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. apríl 1982. Breytt með: L. 85/2012 (tóku gildi 11. sept. 2012 nema 2. málsl. b-liðar 12. gr. sem tók gildi 1. sept. 2013).
1. gr.

Starfa skal samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar. Tilgangur hennar er að vinna að auknum skilningi í löggjafarstarfi á vandamálum og verkefnum kirkjunnar.
2. gr.

Samstarfsnefndina skipa af hálfu Alþingis forseti [Alþingis]
1) og einn fulltrúi tilnefndur af hverjum þingflokki, en af hálfu þjóðkirkjunnar kirkjuráð.

Forseti [Alþingis]
1) og biskup landsins fara með formennsku nefndarinnar sitt árið hvor.
1)L. 85/2012, 29. gr.
3. gr.

Samstarfsnefndin getur annars vegar sent ályktanir og tillögur til Alþingis eða einstakra nefnda þess, en hins vegar til kirkjuþings.