139. löggjafarþing — 134. fundur.
aðgerðir fyrir skuldug heimili.

[13:31]
Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Það er hægt að hafa mörg orð um árangur eða árangursleysi ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur frá því að hún tók við völdum. Hér eru gjaldeyrishöft sem draga úr áhuga erlendra fjárfesta og atvinnuuppbygging frestast. Skattpíning ríkisstjórnarinnar læsir fé inni þannig að innlent fé kemst ekki út til að skapa atvinnu. Verðbólga eykst. Nýlega voru fréttir um að lán heimilanna hefðu hækkað um 42 milljarða vegna verðbólguskots, ef ég má orða það þannig, þ.e. aukinnar verðbólgu. Gengi krónunnar lækkar, það styrkist ekki sem virðist þó vera forsenda kjarasamninga. Það berast fréttir af því að hér séu komin frumvörp um að leggja skatt á lífeyrissjóði til að fjármagna vaxtabótakostnað úr loforðum ríkisstjórnarinnar, bensín hækkar, orkugjöld hækka, atvinnuleysi er mikið, fólk flýr landið, matvara hækkar í verði — og síðan kemur fram skýrsla frá fjármálaráðherra þar sem stendur svart á hvítu að hagsmunir kröfuhafa hafi verið teknir fram yfir hagsmuni heimila og fyrirtækja þegar bankarnir voru endurreistir.

Hvenær á að gera eitthvað raunverulegt fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu? Hvað finnst hæstv. forsætisráðherra um þá upptalningu sem ég fór með? Henni hefur ekki verið neitað enda ekki hægt að neita henni, hún byggir á tölulegum staðreyndum. Er ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ráðalaus þegar kemur að heimilunum? Ríkisstjórnin er búin að segja að meira verði ekki gert fyrir heimili og fyrirtæki í landinu en þá stígur Landsbankinn fram og ákveður upp á sitt eindæmi að lækka lán heimila. Gott hjá honum. En hvað með orð hæstv. forsætisráðherra og fleiri um að meira yrði ekki gert, meira væri ekki hægt að gera? Þetta eru vitanlega (Forseti hringir.) orðin tóm og það er krafa okkar að þessi ríkisstjórn fari að sýna heimilum og fyrirtækjum þá virðingu að koma með raunverulegar aðgerðir sem bæta hag þessa lands.



[13:33]
forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Það er ekki langt síðan allir flokkar á Alþingi ásamt fjármálastofnunum og aðilum vinnumarkaðarins tóku sig saman um að fara yfir það hvað væri hægt að gera til viðbótar því sem gert hefði verið fyrir skuldug heimili. Út úr því kom ákveðin niðurstaða þar sem farið var í verulegar aðgerðir til að styrkja stöðu heimilanna. Meðal annars voru ákveðnir 36 milljarðar í vaxtaniðurgreiðslur fyrir heimilin og ég held að allir hafi verið sæmilega sáttir við það sem þar var sett fram. Ég er sannfærð um að það hafi gert verulega mikið til að leysa vanda skuldugra heimila.

Það er auðvitað alltaf hægt að gera meira en þarna held ég að bæði ríkissjóður og lífeyrissjóðir og aðrir sem að þessu komu hafi gert það sem þeir töldu sig geta gert til að mæta vanda skuldugra heimila. Ég fagna því auðvitað ef Landsbankinn telur að hann geti gert meira, eins og fram kom í fréttum í gær, ég fagna því mjög, og vonandi geta aðrir bankar gert eitthvað svipað. Það er allt gott sem kemur því til viðbótar, en hv. þingmaður getur ekki haldið því fram að þessi ríkisstjórn hafi ekkert gert fyrir skuldug heimili. Upptalning hans sem ég kemst ekki til að svara er alveg fráleit. Af því að hv. þingmaður talar um að það vanti mikið upp á atvinnuuppbygginguna vænti ég þess að hann hafi kynnt sér hagvaxtaráætlanirnar og hvað á að fara að gera í atvinnuuppbyggingu í tengslum við kjarasamningana. Ég vænti þess að hv. þingmaður hafi líka kynnt sér skýrslu OECD þar sem fram kemur að skattbyrði, hvort sem er einstaklinga eða fyrirtækja, er hér á landi með því lægsta sem þekkist. Þetta eru allt öfugmæli sem hv. þingmaður fer með og ég bið bara guð að hjálpa okkur vegna þess að þetta sem hann var að lýsa eru ekki staðreyndir málsins. Þetta er ekki veruleikinn sem hv. þingmaður lýsti. Auðvitað getum við reynt að gera betur en við höfum gert og við erum að því (Forseti hringir.) á hverjum einasta degi, en að halda því fram að þessi ríkisstjórn hafi ekkert gert varðandi skuldug heimili er rangt.



[13:35]
Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Að hugsa sér að hæstv. forsætisráðherra skuli koma hingað og neita því að verðbólga hafi aukist, að vextir séu háir, gengi krónunnar hafi lækkað, að bensín hækki, olíugjald hækki, atvinnuleysi sé mikið, fólk flýi land og að matvara hafi hækkað. Hæstv. forsætisráðherra sagði einfaldlega að sú upptalning sem ég fór með væri röng. (Gripið fram í.) Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða aðgerðir eru það sem hæstv. ráðherra telur hafa skipt svo miklu fyrir heimilin í landinu?

Svo er annað sem er kannski fyrst og fremst það sem mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í: Gildir ekki lengur sú yfirlýsing sem ráðherrann gaf um að ekki væri hægt að gera meira fyrir heimilin í landinu?

Nú hefur Landsbankinn sýnt að þar er svigrúm, svigrúm sem við mörg hver höfum iðulega bent á. Ætlar forsætisráðherra að beita sér fyrir því að með sama hætti komi aðrar fjármálastofnanir inn í, (Forseti hringir.) lífeyrissjóðir og ríkissjóður sem eigandi Íbúðalánasjóðs?



[13:36]
forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Allir voru sammála um það þegar við fórum í síðustu aðgerðirnar sem margir komu að að ekki væri skynsamlegt að gefa væntingar um að það væri alltaf von á meira og meira fyrir skuldug heimili sem varð til þess að þau nýttu sér ekki þau úrræði sem voru fyrir hendi. Ég hef orðið vör við að ýmsir vita ekki af þeim úrræðum sem eru fyrir hendi en margir hafa hins vegar nýtt þau þegar þeim hefur verið sagt frá þeim og það hefur bjargað þeim.

Við verðum að vona að þetta dugi. Við fylgjumst auðvitað mjög grannt með því hvort hægt sé að gera betur og fylgjumst vel með stöðu heimilanna.

Að því er varðar atvinnuleysi veit hv. þingmaður að það er minna en menn bjuggust við. Við stefnum að því að það verði helmingi minna eftir kjarasamningatímann en það er núna. Varðandi þá verðbólguhækkun sem er núna er hún vissulega upp á 1 prósentustig en við erum að vona að þetta sé einungis verðbólguskot sem megi aðallega rekja til hækkunar á heimsmarkaðsverði (Forseti hringir.) á olíu og á húsnæðiskostnaði. Það er margt sem bendir til þess.