144. löggjafarþing — 115. fundur.
afskipti ráðuneytis af skipan stjórnarformanns fjármálafyrirtækis.

[11:34]
Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Þegar hæstv. fjármálaráðherra segir að ríkisstjórnin hafi þurft að laga sig að veruleikanum í gjaldeyrishöftunum þá segja hans eigin orð meira en þúsund orð um það hversu óraunhæfar hugmyndir ríkisstjórnin hafði í þeim efnum. Sífelldar frestanir og feluleikur með tillögur eykur ekki trúverðugleikann í þessum málum. Það hefur verið sýnd mikil þolinmæði í tvö ár og ég spyr fjármálaráðherra hvort hann ætli enn einu sinni að segja hér í dag að tillögurnar komi í næstu viku.

Virðulegi forseti. Ég kom hingað upp til að spyrja um annað og alvarlegt mál. Það eru yfirlýsingar Bankasýslu ríkisins um að ráðuneytisstjórinn í fjármálaráðuneytinu hafi reynt að hafa áhrif á skipan stjórnarformanns í fjármálastofnun sem Bankasýslan hafði umsjón með, en sem kunnugt er á Bankasýslan að tryggja að pólitíkin sé ekki að vasast í bönkum landsins og því síður stjórnarformennsku þeirra. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra: Var þetta að hans undirlagi? Var hæstv. fjármálaráðherra að hlutast til um það með atbeina embættismanns síns hver yrði gerður að stjórnarformanni í tilteknum sparisjóði? Er það rétt sem fram kemur hjá Bankasýslunni að þetta hafi gerst og ef svo er, til hvaða ráðstafana telur hæstv. ráðherra eðlilegt að grípa? Um þetta var fjallað á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun og ég verð að segja að þetta eru algjörlega sláandi fréttir ef réttar eru.



[11:36]
fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Í fyrsta lagi varðandi gjaldeyrishaftamálin, eigum við ekki spyrja að leikslokum í því máli? Á það að koma einhverjum á óvart að það þurfi að vanda sig og menn þurfi að hlusta á ráð ráðgjafa og að menn þurfi ef til vill að gera breytingar á áformum sínum eftir því sem bestu manna ráð gefa tilefni til? Það kemur mér á óvart ef mönnum þykir það eitthvað skrýtið. Það hefur ekkert með það að gera að menn hafi haft óraunhæfar væntingar, þetta snýst bara um hvað gagnast best í efnahagslegu tilliti og heldur best út frá lögfræðilegu sjónarmiði.

Varðandi umsögn Bankasýslunnar til Alþingis vil ég í fyrsta lagi segja almennt um slíka umsögn að það kemur ekki á óvart að þegar fram kemur tillaga um að leggja niður stofnun að viðkomandi stofnun hafi við það einhverjar athugasemdir, það finnast mér ekki vera nein nýmæli fyrir okkur á þinginu.

Varðandi samskipti ráðuneytisins og Bankasýslunnar um sameiningu Sparisjóðs Bolvíkinga við sparisjóðinn fyrir norðan get ég staðfest það sem áður hefur komið fram að lýst var miklum áhyggjum við mig persónulega vegna þess hvernig staðið væri að undirbúningi þeirrar sameiningar. Mér fannst sjálfsagt og eðlilegt að því yrði komið á framfæri við Bankasýsluna. Í því fólust ekki nein tilmæli þegar ráðuneytisstjóri Fjármálaeftirlitsins kom þessum upplýsingum á framfæri vegna þess að ef illa hefði farið þá hefði einfaldlega ekki getað orðið af sameiningunni. Menn eru nú komnir býsna langt frá kjördæmum sínum og tengslum við fólkið í landinu ef það er orðinn glæpur og brot á lögum að koma sjónarmiðum fólksins í landinu á framfæri við stofnanir okkar.



[11:39]
Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Það var fjármálaráðherra sjálfur sem sagði orðrétt að ríkisstjórnin hafi orðið að „aðlaga sig að veruleikanum í gjaldeyrishaftamálinu“. Það verður ekki skilið öðruvísi, virðulegur fjármálaráðherra, en að hugmyndirnar hafi verið óraunhæfar.

Um Bankasýsluna segi ég þetta: Ég fagna því að fjármálaráðherra skuli lýsa ábyrgð sinni á samskiptunum og það sé þá ljóst að þau eru á ábyrgð fjármálaráðherra og það hafi verið fjármálaráðherra sem hafi látið ráðuneytisstjóra sinn hafa samband við Bankasýsluna. En það gerir þau auðvitað margfalt alvarlegri. Komin langt frá kjördæmum sínum, segir virðulegur fjármálaráðherra. En hæstv. fjármálaráðherra, Bankasýslan var sett til þess að stjórnmálamenn væru ekki að grauta í málefnum fjármálafyrirtækja, að ekki væri hægt að hringja í ráðherra og kvarta yfir einhverju í einhverri fjármálastofnun úr einhverju kjördæmi og þá hringdi ráðherrann bara og hlutaðist til um hvernig stjórnin væri skipuð. Þess vegna eru þetta grafalvarleg afskipti, virðulegur forseti, af sjálfstæði Bankasýslunnar (Forseti hringir.) og þarf að taka til alvarlegrar umfjöllunar hér í þinginu hvernig ráðherrann fer með vald sitt.



[11:40]
fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Þetta mál er ekkert annað stormur í vatnsglasi. Það er algjörlega með ólíkindum að menn skuli nota þennan ræðustól til þess að halda því fram í fullri alvöru að menn eigi að vera svo aftengdir því sem er að gerast í stofnunum stjórnsýslunnar að ef menn dirfast að koma á framfæri upplýsingum úr viðkomandi sveitarfélögum sem hér eiga í hlut séu menn farnir að brjóta allar reglur og lög. Það er algjörlega með ólíkindum.

Það sem var þarna á ferðinni var að það var mikil ólga í Bolungarvík vegna sameiningar sparisjóðanna og ósætti um með hvaða hætti að því hafði verið staðið. Fram undan var fundur til þess að útkljá málið. Mér fannst rétt að þessi stofnun, Bankasýslan, væri upplýst um þá ólgu og að menn tækju tillit til þess áður en til fundar yrði boðað hvort hægt væri að sætta sjónarmið þannig að við næðum þeim markmiðum sem við stefnum öll sameiginlega að. Ég hef aldrei nokkru sinni verið (Forseti hringir.) með hugmyndir um einhverja stjórnarmenn, ég hef ekki einu sinni hugmynd um það hvernig það mál endaði, hverjir enduðu í stjórn í sameinuðum sparisjóði, ég hef það ekki í kollinum. En að gera því skóna að menn hafi verið að hlutast til um verkefni stofnunar sem eigi að hafa sjálfstæði er bara með ólíkindum.