orð þingmanns í störfum þingsins.
Málshefjandi var .
orð þingmanns í störfum þingsins.
Ágæti forseti. Mig langaði að vekja athygli forseta á því að hér í störfum þingsins áðan kom hv. þm. Karl Gauti Hjaltason fram með alvarlegar ásakanir og óskir um afsögn utanríkisráðherra. Eitt af því fyrsta sem mér var kennt hér í þingsal var að þegar við hér í ræðustól ætlum að taka fyrir ákveðna þingmenn er þeim gefinn séns á því að vera í þingsalnum til að svara fyrir þær sakir sem eru á þá bornar. Mér finnst það góður siður og ég hvet forseta til að beita sér fyrir því, þegar slíkt er í umræðu, að tryggja það að viðkomandi ráðherrar eða þingmenn séu í salnum til að geta svarað fyrir þær ásakanir sem eru á þá bornar.
Frú forseti. Ég átta mig nú ekki alveg á því hvað hv. þm. Víðir Reynisson er að fara þegar hann er að tala um að ásakanir. Ég sagði að ég teldi utanríkisráðherra vera rúinn trausti (Gripið fram í: Hvað ertu að segja? )— rúinn trausti, og henni væri sæmst að segja af sér. Hún metur það. En þetta voru mín orð og þetta er mín skoðun eftir það sem ég lýsti í minni ræðu, þessari atkvæðagreiðslu þar sem átti að treysta þjóðinni. En henni er greinilega ekki treyst meira en það að það á ekki einu sinni að afturkalla þessa umsókn sem mun vera þarna í Brussel.
Frú forseti. Það er rétt sem kom fram í máli hv. þm. Víðis Reynissonar, að það er siður hér á þinginu, ekki síst í störfum þingsins þar sem er alla jafnan ekki auðvelt að svara fyrir sig, að þyki þingmaður vega að með einhverjum hætti eða gagnrýna sérstaklega einhvern ákveðinn þingmann þá er sá siður, og hann er góður, að láta viðkomandi vita svo hann geti þá sett sig á mælendaskrá og brugðist við. Ég hygg meira að segja að ég hafi verið einn af þeim sem pikkuðu einhvern tímann í hv. þm. Víði Reynisson út af umræðu um slíkt atvik hér í fyrravetur. Það er þó sá reginmunur á, svo því sé haldið til haga, að þetta gildir alla jafna ekki um ráðherra því að við þingmenn höfum yfirleitt ekki tækifæri til að eiga samskipti við ráðherra hér í störfum þingsins. Við getum alveg farið í skjölin hérna og skoðað það að hér fá ráðherrar ítrekað á sig beina gagnrýni frá óbreyttum þingmönnum án þess að það sé talið vega að þessum góða sið okkar hér.
Frú forseti. Tíminn getur verið knappur þegar maður er að leita að hlutum í þingskapalögunum. En það er hárrétt að hér er það ekki bara til siðs heldur er beinlínis gert ráð fyrir því í þingsköpum að þingmenn séu látnir vita og gefinn kostur á að mæta hér til umræðu þegar þannig háttar til. Ég held að það sé rétt sem hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson sagði áðan að það væri munur á þingmönnum og ráðherrum í þeim efnum í ljósi eðlis starfa ráðherra, að þau séu linnulaust undirorpin gagnrýni og sennilega aldrei meira en nú í tíð þessarar ríkisstjórnar af eðlilegum ástæðum. En þetta er hárrétt og þetta hefur komið oftar upp síðustu tvö þing heldur en ég man eftir á þingunum þar á undan, að þingmenn hafi ekki fengið viðvörun áður en um þá er rætt í störfum þingsins. (Forseti hringir.) En ég vil bara halda því til haga að störf ráðherra eru með allt öðrum hætti til ígrundunar og gagnrýni hér (Forseti hringir.) í ljósi þess að þeir sitja í skjóli meiri hluta þingsins hverju sinni og ég vildi bara halda þessu sjónarmiði til haga.
Frú forseti. Í framhaldi af því sem hv. þm. Bergþór Ólason nefndi varðandi það að hafa ekki samúð með ráðherra þá vil ég vekja athygli forseta á því að hæstv. fjármálaráðherra brigslaði mér um það hér í andsvörum í gær að ég væri ekki að fara rétt með. Staðreyndin var sú að ég var að fara alveg rétt með. En hvernig gerir hann þetta? Hann gerir þetta í andsvörum þegar ég hafði ekki tök á því að koma aftur upp. Þetta var hæstv. ráðherra sem hegðaði sér með þessum hætti. Mér finnst þetta ekki gott. Ég vil líka nota tækifærið til að benda forseta á það að nú er það að gerast ítrekað, sama og á fyrra þingi, að hæstv. ráðherrar koma hér og snúa út úr í stað þess að svara spurningum. Hvorki hæstv. utanríkismálaráðherra né hæstv. forsætisráðherra geta svarað þeirri einföldu spurningu hvort þeir og utanríkismálaráðuneytið telji að Ísland sé umsóknarríki að Evrópusambandinu. Það er auðvitað óboðlegt að við þurfum að koma hér trekk í trekk og nota spurningarnar sem við fáum til að spyrja aftur sömu spurninga.