145. löggjafarþing — 31. fundur.
samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, frh. 2. umræðu.
stjfrv., 157. mál (breyting ýmissa laga). — Þskj. 157, nál. m. brtt. 287.

ATKVÆÐAGREIÐSLA

[15:50]

[15:49]
Páll Valur Björnsson (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég kem upp fyrir hönd Bjartrar framtíðar til að fagna þessu frumvarpi og atkvæðagreiðslu um það. Þetta er mikilvægt skref í því að innleiða samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, lítið hænuskref, en eins og við tókum eftir í morgun kom Öryrkjabandalagið með undirskriftasöfnun til að hvetja okkur þingmenn til að fullgilda samninginn og lögfesta hann. Það væri náttúrlega það besta sem við gætum gert.

Ég vil líka nota tækifærið til að minna á annað frumvarp til laga sem liggur inni hjá þinginu en hefur ekki verið mælt fyrir, um breytingu á ákvæðum ýmissa laga um bann við mismunun (réttindi fatlaðs fólks). Þetta lögðum við fram til að hjálpa löggjafarþinginu og framkvæmdarvaldinu við að reyna að fullgilda þetta sem fyrst og ég hvet stjórn þingsins og þingheim til að taka það frumvarp til umræðu sem fyrst.



[15:49]
Birgitta Jónsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég fagna því að við tökum hænuskref en legg til að við förum að taka tröllaskref í þessum málaflokki. Til að setja hlutina í samhengi er hér til dæmis ein breyting, í stað orðsins „fávita“ í 222. gr. laganna kemur: einstaklingi með þroskahömlun. Við erum með þvílíka drauga í lagasetningu hér á landinu og það er með ólíkindum hvað þetta tekur langan tíma.

Okkur vantar mörg mál til að afgreiða hér á þinginu. Tökum tröllaskref og innleiðum þennan mikilvæga sáttmála sem mun auka réttindi þeirra sem við eigum að tryggja að séu aðstoðuð og hjálpum sem frekast því að þau þurfa svo sannarlega á því að halda.



 1. gr. samþ. með 47 shlj. atkv.

 2.–16. gr. samþ. með 49 shlj. atkv.

Brtt. í nál. 287 samþ. með 49 shlj. atkv.

 17. gr., svo breytt, samþ. með 49 shlj. atkv.

 18.–30. gr. samþ. með 49 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frumvarpið gengur til 3. umr.