149. löggjafarþing — 9. fundur.
varamenn taka þingsæti.

[15:01]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur, 7. þm. Suðvest., um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Viðreisnar í kjördæminu, Sigríður María Egilsdóttir.

Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er því boðin velkomin til starfa að nýju.