149. löggjafarþing — 34. fundur.
um fundarstjórn.

afgreiðsla frumvarps um veiðigjald úr nefnd.

[14:19]
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég kem hingað upp einfaldlega til að hrósa hæstv. forseta eftir fund atvinnuveganefndar í morgun þar sem hið stóra, mikla og mikilvæga veiðigjaldamál var til umræðu. Það var tekið út með ofbeldi, að mínu mati, og því var harðneitað að taka við gestum sem við lögðum til eftir að breytingartillögur lágu fyrir og þær yrðu þá teknir inn til nefndarinnar milli 2. og 3. umr.

Allir vita náttúrlega að meginumræðan í þessu máli og í flestum málum hér er við 2. umr. Þetta mál verður að sjálfsögðu klárað með einum eða öðrum hætti fyrir áramót, en ég taldi mikilvægt að við fengjum mjög ítarlega umræðu og um leið tækifæri til að vinna þetta.

En ég vil hæla hæstv. forseta fyrir að hafa komið að einhverju leyti til móts við okkur í stjórnarandstöðunni. Auðvitað hefðum við viljað sjá þetta aðeins öðruvísi en engu að síður þakka ég forseta fyrir að hafa hlustað á raddir okkar og reynt að stuðla að betra vinnulagi í þinginu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)



[14:20]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti er aldrei neitt nema eyru ef eitthvað má gera til að greiða fyrir þingstörfunum.



[14:20]
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég kem hingað til að taka undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, það er gott að við höfum fengið smátíma til að undirbúa okkar nálgun gagnvart þessu mikilvæga máli, sem og að vera fyllilega upplýst um afleiðingar þess og fá að tala við sérfræðinga sem málið varða. Það stóð ekki til. Við fögnum því að kominn sé einhver aukatími til að gera það þótt við hefðum vissulega viljað hafa lengri tíma og hafa fengið betri móttökur við þessum beiðnum okkar á nefndarfundi í morgun þegar málið var tekið út í ósætti.



[14:21]
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Mig langar bara að taka undir með hv. þingmönnum sem töluðu á undan og hrósa hæstv. forseta fyrir að taka vel í tillögu okkar. Það var ekki til fyrirmyndar hvernig umræðan var á fundinum í morgun og mjög mikilvægt að forseti bregðist við þegar svo er og gefi okkur almennilegan tíma til að fjalla um svo mikilvægt mál. Ég held að við séum öll sammála um að það sé sérstaklega mikilvægt að við vinnum það vel og vöndum allan undirbúning. Þess vegna voru það mikil vonbrigði að þetta skyldi þurfa að afgreiðast með ágreiningi í morgun.