150. löggjafarþing — 3. fundur.
lengd þingfundar og fyrirkomulag fjárlagaumræðu.

[10:35]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Samkomulag er um það milli forseta og þingflokksformanna að þingfundur geti staðið lengur í dag en til kl. 20 ef þörf krefur.

Í dag verður almenn umræða um fjárlagafrumvarpið í framhaldi af framsögu fjármála- og efnahagsráðherra. Á morgun munu svo einstakir fagráðherrar taka þátt í umræðum um sína málaflokka.

Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar, samanber 3. mgr. 67. gr. þingskapa. Fjármála- og efnahagsráðherra hefur allt að 15 mínútur til framsögu nú í upphafi. Réttur til andsvara verður rýmkaður, þ.e. tryggt verður að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka geti veitt full andsvör við ræðu ráðherra.

Því næst talar einn talsmaður frá hverjum þingflokki í tíu mínútur hver og síðan aðrir þingmenn sem óska eftir að taka þátt í umræðunni og hafa allt að tíu mínútum. Hefðbundinn andsvararéttur gildir út umræðuna að frátalinni rýmkun á eftir ræðu hæstv. fjármálaráðherra, en þó þannig að aðeins fjármálaráðherra og/eða talsmenn þingflokkanna hafa rétt til andsvara í fyrstu umferð umræðunnar.