150. löggjafarþing — 28. fundur.
Frestun á skriflegum svörum.
skuldbinding íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, fsp. ÓÍ, 113. mál. — Þskj. 113.
athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, fsp. ÓÍ, 124. mál. — Þskj. 124.
utanlandsferðir á vegum ráðuneytisins, fsp. ÞorS, 215. mál. — Þskj. 228.
kostnaður við húsnæði landlæknisembættisins, skrifstofuhúsnæði Landspítalans og húsnæði Blóðbankans, fsp. SPJ, 226. mál. — Þskj. 244.
stjórnsýsla forsjár- og umgengnismála, fsp. BLG, 196. mál. — Þskj. 202.

[15:00]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Þrjú bréf frá utanríkisráðherra vegna fyrirspurna á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, frá Ólafi Ísleifssyni; á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytisins við lögfræðilegar álitsgerðir, frá Ólafi Ísleifssyni, og á þskj. 228, um utanlandsferðir á vegum ráðuneytisins, frá Þorsteini Sæmundssyni.

Bréf barst frá heilbrigðisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 244, um kostnað við húsnæði landlæknisembættisins, skrifstofuhúsnæði Landspítalans og húsnæði Blóðbankans, frá Sigurði Páli Jónssyni.

Loks barst bréf frá dómsmálaráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 202, um stjórnsýslu forsjár- og umgengnismála, frá Birni Leví Gunnarssyni.