150. löggjafarþing — 134. fundur.
Frestun á skriflegum svörum.
skuldbinding íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, fsp. ÓÍ, 113. mál. — Þskj. 113.
athugasemdir ráðuneytis við lögfræðilegar álitsgerðir, fsp. ÓÍ, 124. mál. — Þskj. 124.
kostnaður ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum, fsp. BN, 809. mál. — Þskj. 1418.

[15:02]
Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 113, um skuldbindingu íslenska ríkisins um að réttilega innleiddar EES-gerðir hafi forgangsáhrif í íslenskum rétti, og á þskj. 124, um athugasemdir ráðuneytisins við lögfræðilegar álitsgerðir, frá Ólafi Ísleifssyni, og á þskj. 1418, um kostnað ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum, frá Brynjari Níelssyni.