152. löggjafarþing — 47. fundur.
varamaður tekur þingsæti.

[15:00]
Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Pírata um að Halldóra Mogensen, 3. þm. Reykv. n., verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Lenya Rún Taha Karim. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.