152. löggjafarþing — 90. fundur
 14. júní 2022.
fjármálamarkaðir, 3. umræða.
stjfrv., 532. mál (innleiðing o.fl.). — Þskj. 1231, breytingartillaga 1255.

[21:12]
Guðrún Hafsteinsdóttir (S):
Bráðabirgðaútgáfa.

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á fjármálamarkaði (innleiðing o.fl.).

Breytingartillagan er minni háttar og lagatæknilegs eðlis. Henni er ætlað að gera efni frumvarpsins skýrara og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Ég legg til að breytingartillagan verði samþykkt.