153. löggjafarþing — 1. fundur.
afbrigði um dagskrármál.

[15:35]
Forseti (Birgir Ármannsson):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. 4. mgr. 3. gr. þingskapa, þannig að hluta megi um sæti formanna þingflokka sérstaklega og þeir hafi sæti næst inngangi í salinn og dragi innbyrðis um þessi sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.

Samkvæmt því eru þá sæti þingflokksformanna þessi miðað við hlutaveltu sem átti sér stað á síðasta fundi þingflokksformanna:

Guðmundur Ingi Kristinsson hlýtur sæti tvö, Ingibjörg Isaksen hlýtur sæti sjö, Hanna Katrín Friðriksson hlýtur sæti átta, Orri Páll Jóhannsson hlýtur sæti 13, Bergþór Ólason hlýtur sæti 22, Óli Björn Kárason hlýtur sæti 23, Halldóra Mogensen hlýtur sæti 44 og Helga Vala Helgadóttir sæti 45. Þá hefur enn fremur orðið samkomulag um hvernig hluta skuli um sæti fyrir hv. þingmenn Ingu Sæland og Steinunni Þóru Árnadóttur þannig að þær fái sæti sem henta þeim sérstaklega. Fær Inga Sæland sæti fimm og Steinunn Þóra Árnadóttir sæti 57. Skoðast þetta samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.