Suðurlandsvegur.
Virðulegi forseti. Nú stendur yfir athyglisverð umræða um málefni Suðurlandsvegar og hæstv. samgönguráðherra hefur svarað því hver umferðaraukningin var á þessari leið á síðustu árum og kemur í ljós að hún er hátt í 70% og um er að ræða gífurlega umferð um veginn.
Umferðaröryggi um Suðurlandsveg kallar á að vegurinn verði breikkaður og meginatriðið er að á næstu fjórum árum ljúki framkvæmdum um Suðurlandsveg. Þá verði búið að tvöfalda veginn og þar með verði umferðaröryggi náð og samkeppnishæfni svæðisins við önnur jaðarsvæði höfuðborgarinnar tryggt til framtíðar. Þetta er algert grundvallaratriði sem allir stjórnmálamenn á svæðinu hljóta að berjast fyrir.
Mikill þungi er í umræðunni á svæðinu og við sáum það í tilvitnaðri grein, sem kveikti mjög í hæstv. ráðherra, eftir Árna Gunnarsson í Morgunblaðinu þar sem Árni spyr hvort Hellisheiði sé í hers höndum og skorar á Alþingi og samgönguyfirvöld að ráðast í bráðar bætur. Með leyfi forseta, segir Árni Gunnarsson:
„Þeir gætu tekið Rómverja hina fornu sér til eftirbreytni. Þeir vissu að ríki þeirra gat aldrei orðið skilvirkt, sterkt og voldugt án góðra samgangna. Þessi staðreynd gildir líka hér.“
Undir þessi orð er hægt að taka.
Fólksfjölgun um svæðið hefur verið gífurleg. Eigendur sumar- og heilsárshúsa þar skipta tugum þúsunda. Aukið öryggi við breikkun skiptir þar algerum sköpum. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga hafa forgangsraðað mjög í þessa veru og hafa í rauninni fært sig nær því vegna þess að umferðaraukningin á veginum er mun meiri rétt eins og fólksfjölgunin á svæðinu er mun meiri en áður var ráð fyrir gert. Því hafa samtökin í rauninni aukið kröfur sínar í þessum efnum og tala nú um tvöfaldan Suðurlandsveg alla leið á milli en ekki 2+1 eins og áður var rætt um þegar talið var að umferðaraukningin um svæðið yrði ekki svona gífurleg.
Hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar í Suðurkjördæmi fluttu á dögunum þingsályktunartillögu um samgöngumál þar sem skorað er á ríkisstjórnina að sjá til þess að á næstu fjórum árum verði lokið við að byggja upp fjögurra akreina veg milli Reykjavíkur og Selfoss. Í nokkra mánuði var reynt að ná samstöðu allra þingmanna kjördæmisins um að flytja þessa tillögu saman í þeirri röð sem menn voru kosnir inn á Alþingi en það náðist því miður ekki. Þess vegna fluttum við tillöguna í síðustu viku sjálf.
Ég beini þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðherra hvað líði framkvæmdum um veginn og hvort komi til greina að hans mati að hraða þeim framkvæmdum, en fram að þessu hefur hæstv. ráðherra ekki viljað tímasetja lok framkvæmda við Suðurlandsveg sem lúta að tvöföldum vegi og hefur ekki léð máls á því. Ég skora á hæstv. ráðherra, ég hef gert það mörgum sinnum, að endurskoða þá afstöðu sína og ef marka má yfirlýsingar hæstv. ráðherra og umræðu um málið í blöðum, fjölmiðlum á Suðurlandi upp á síðkastið má binda vonir við að hæstv. ráðherra gæti hafa skipt um skoðun í þessu efni og ætli nú að vinna með okkur að því að hraða tvöföldun Suðurlandsvegar á næstu árum.