138. löggjafarþing — 17. fundur,  2. nóv. 2009.

vitamál.

74. mál
[16:19]
Horfa

samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Kristján L. Möller) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um vitamál, nr. 132/1999.

Frumvarp þetta er samið í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Siglingastofnun Íslands.

Tilgangur þess er að kveða á um hækkun vitagjalds í samræmi við verðlagsbreytingar og þróun gengis frá því að upphæð gjaldsins var hækkuð með lögum nr. 142/2002, um breytingu á lögum um vitamál, nr. 132/1999. Þá var ákveðið að vitagjald skyldi vera 78,20 kr. af hverju brúttótonni skips og lágmarksgjald 3.500 kr.

Með frumvarpi þessu er lagt til að vitagjald verði 156,50 kr. á hvert brúttótonn, sem er 100% hækkun í samræmi við þróun gengisbreytinga og hækkun neysluverðsvísitölu, og að lágmarksgjald hækki í 4.900 kr. Frá ársbyrjun 2002 til febrúar 2009 hefur neysluverðsvísitalan hækkað um 39% og evra um heil 100%.

Í dag greiða erlend skip um 85% af vitagjaldi og mun hækkunin því að mestu varða þau en lágmarksgjaldið er greitt af smábátaflotanum.

Ekki er ætlunin með frumvarpinu að það hafi í för með sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð og verða fjárheimildir Siglingastofnunar Íslands til útgjaldaskuldbindinga óbreyttar. Hins vegar er gert ráð fyrir að með hækkun vitagjaldsins muni ríkistekjur af gjaldinu aukast um 145 millj. kr. og verða 290 millj. kr. á árinu 2010. Fjármögnun Siglingastofnunar mun þá breytast að því leyti að gert er ráð fyrir að beint ríkisframlag lækki um sömu fjárhæð. Breytingin mun þannig ekki hafa áhrif á afkomu ríkissjóðs. Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 hefur verið gert ráð fyrir þessum breytingum.

Jafnframt er lagt til að 6. gr. laganna verði breytt á þann veg að vitagjaldið sé ekki einungis notað í verkefni samkvæmt 2. gr. laganna heldur skuli það almennt standa straum af kostnaði við rekstur Siglingastofnunar Íslands og við framkvæmdir á vegum stofnunarinnar. Með því móti skapast tækifæri fyrir stofnunina að nýta tekjur af gjaldtökunni til brýnna verkefna og framkvæmda að mati stofnunarinnar en ekki einungis þeirra verkefna sem talin eru upp í 2. gr. laganna.

Virðulegi forseti. Ég tel ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri heldur legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. samgöngunefndar.