139. löggjafarþing — 113. fundur, 15. apr. 2011.
fjöleignarhús.
377. mál
Frú forseti. Ég styð breytingartillögu sem við greiðum atkvæði um enda tel ég hana stuðla að frjálslyndi og virðingu fyrir fjölbreytileika. Samtímis er í frumvarpinu kveðið skýrt á um þær reglur sem hunda- og kattaeigendur þurfa að lúta og það tillit sem þeir eiga að sýna nágrönnum sínum. Með breytingartillögunni er réttur fólks með alvarlegt ofnæmi jafnframt tryggður.