141. löggjafarþing — 84. fundur, 20. feb. 2013.
varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá 8. þm. Suðurk., Róberti Marshall, um að hann geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Anna Margrét Guðjónsdóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.