143. löggjafarþing — 117. fundur,  15. maí 2014.

loftslagsmál.

592. mál
[21:49]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Höskuldur Þórhallsson) (F):

Virðulegi forseti. Hinn 30. apríl síðastliðinn var reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 421/2014 frá 16. apríl 2014 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma á fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan bandalagsins með tilliti til framkvæmdar á alþjóðasamningi um beitingu sameiginlegrar markaðstengdrar heildarráðstöfunar um alþjóðlega losun frá flugi frá árinu 2020 tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2014 frá 30. apríl 2014. Alþingi samþykkti þingsályktun um upptöku gerðarinnar í EES-samninginn án stjórnskipulegs fyrirvara 29. apríl síðastliðinn því að mikilvægt var að reglugerðin tæki gildi á sama tíma á öllu EES-svæðinu.

Í umræðum á Alþingi komu fram þau sjónarmið að rétt væri að setja bráðabirgðaákvæði í lög nr. 70/2012 strax á vorþingi en með því móti verður reglugerð til innleiðingar á reglugerð ESB nr. 421/2014 sett fullnægjandi lagastoð auk þess sem það verður engum vafa undirorpið hvaða skyldur hvíla á flugrekendum varðandi skýrsluskil og skil á losunarheimildum samkvæmt lögum um loftslagsmál, nr. 70/2012. Nefndin tekur undir þau sjónarmið og leggur því til að frumvarpið verði samþykkt á Alþingi. Gert er ráð fyrir að ráðherra leggi fram frumvarp á Alþingi til fullnaðarinnleiðingar á reglugerð nr. 421/2014 í haust.