144. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2014.

endurskoðun stjórnarskrárinnar.

[10:52]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Nefndin sem hv. þingmaður spurði um, nefnd um endurskoðun stjórnarskrárinnar, er að vinna að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar og notar við þá vinnu afrakstur þess starfs sem hv. þingmaður vísar til á síðustu árum. Svarið er: Já, það er verið að vinna að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar, m.a. á grundvelli þess starfs sem unnið hefur verið á undanförnum árum.