146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

jafnræði í skráningu foreldratengsla.

102. mál
[18:41]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Vilhjálmur Árnason) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti með breytingartillögu frá allri allsherjar- og menntamálanefnd um tillögu til þingsályktunar um jafnræði í skráningu foreldratengsla.

Nefndin fjallaði um málið eftir að hafa farið yfir umsagnir sem bárust frá Barnaheillum, Persónuvernd, umboðsmanni barna og Þjóðskrá Íslands.

Samkvæmt þingsályktunartillögunni er lagt til að Alþingi álykti að fela dómsmálaráðherra að setja reglugerð um framkvæmd laga um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962, þar sem tryggt verði að jafnræði ríki með foreldrum barna með tilliti til skráningar foreldratengsla í þjóðskrá og afnumin verði sú mismunun sem nú á sér stað gagnvart mæðrum í samkynja hjúskap eða sambúð.

Með forsetaúrskurði frá 7. apríl 2017, nr. 15/2017, voru málefni Þjóðskrár Íslands og lög um þjóðskrá og almannaskráningu færð frá innanríkisráðherra til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Dómsmálaráðuneyti fer hins vegar með mál er varða sifjarétt, þar á meðal málefni barna og hjúskap. Leggur nefndin til breytingu á tillögugreininni þessu til samræmis.

Á fundum nefndarinnar var rætt um að brýnt sé að breyta þeirri framkvæmd hjá Þjóðskrá Íslands að mæðrum í samkynja hjúskap eða skráðri sambúð sé gert að afhenda Þjóðskrá Íslands yfirlýsingu um að barn þeirra sé getið með tilstyrk tæknifrjóvgunar, annars verði sú kona ein skráð foreldri sem ól barnið. Umsagnaraðilar voru almennt jákvæðir gagnvart markmiði tillögunnar en fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að lagabreytingu gæti þurft til að breyta núverandi framkvæmd skráningar foreldratengsla. Jafnframt var rætt um að þörf sé á að taka til athugunar skráningu foreldratengsla almennt. Nefndin telur mikilvægt að tryggt verði að jafnræði ríki með foreldrum barna með tilliti til skráningar foreldratengsla í þjóðskrá og beinir því til ráðherra að meta hvaða leið henti best til að vinna að framgangi markmiðs tillögunnar og leggur því til breytingar í samræmi við það.

Að framangreindu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Tillögugreinin orðist svo:

Alþingi ályktar að fela samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í samráði við dómsmálaráðherra að sjá til þess að tryggt verði að jafnræði ríki með foreldrum barna með tilliti til skráningar foreldratengsla í þjóðskrá og afnumin verði sú mismunun sem nú á sér stað gagnvart mæðrum í samkynja hjúskap eða sambúð.

Nefndin var sammála um þessar breytingar, að þetta væri mál sem væri mikilvægt að myndi ná fram að ganga. Alltaf þegar þessi mál koma til umræðu, eins og kemur fram í nefndarálitinu, er þó líka áréttað skoða þurfi skráninguna heildstætt, það er margt í sifjaréttinum, skráningu og öðru slíku sem þarf að athuga. En þetta er jákvætt skref sem við stöndum öll að í nefndinni og við erum tilbúin að vinna frekari breytingar í þessum málaflokki.

Undir nefndarálit þetta skrifar formaður hv. allsherjar- og menntamálanefndar, hv. þm. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, og hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, Nichole Leigh Mosty, Eygló Harðardóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Björn Leví Gunnarsson, Iðunn Garðarsdóttir, Brynjar Níelsson og Pawel Bartoszek.