148. löggjafarþing — 12. fundur, 29. des. 2017.
tilhögun þingfundar.
Áformað er að hlé verði gert á þingfundum milli kl. 14 og 15.30 í dag fyrir hádegishlé og fundi í nefndum. Auk þess lætur forseti þess getið að hann lítur svo á að samkomulag sé um að þingfundir í dag geti staðið lengur en þingsköp gera ráð fyrir og þar til umræðum um dagskrármál er lokið.