148. löggjafarþing — 37. fundur,  8. mars 2018.

útgáfa vestnorrænnar söngbókar.

119. mál
[11:13]
Horfa

Frsm. (Logi Einarsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um útgáfu vestnorrænnar söngbókar, frá utanríkismálanefnd.

Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Logi Einarsson, Ari Trausti Guðmundsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Smári McCarthy og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Fjarverandi voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir formaður, og Bryndís Haraldsdóttir, en Inga Sæland sem situr fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi er samþykk álitinu.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðjón S. Brjánsson, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, Sigurð Ólafsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins, og Bylgju Árnadóttur, ritara Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins.

Með tillögunni er ríkisstjórn Íslands hvött til að beita sér ásamt landsstjórnum Færeyja og Grænlands fyrir því að vestnorræn söngbók verði gefin út með lögum á þjóðtungum landanna þriggja. Vestnorræn söngbók með lögum á íslensku, færeysku og grænlensku yrði íbúum landanna góð kynning á þjóðtungum og sönglagamenningu nágranna sinna. Fyrsta skrefið í þessa átt væri að setja á fót vinnuhóp fagfólks frá löndunum þremur sem mundu velja lögin og útsetja þau með nótum.

Eins og segir í greinargerð með tillögunni er hún lögð fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 1/2017 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 1. september 2017 í Reykjavík.

Nefndin er jákvæð gagnvart útgáfu vestnorrænnar söngbókar en hefur efasemdir um þörf á atbeina ríkisstjórnar í málinu. Nefndin telur að Vestnorræna ráðið geti unnið að slíkum verkefnum, m.a. í gegnum sjóði fyrir norrænt og vestnorrænt menningarsamstarf, án þess að sérstök hvatning Alþingis til ríkisstjórnar þurfi að koma til. Nefndin beinir því vinsamlegum tilmælum til Vestnorræna ráðsins um að endurskoða verklag sitt þegar viðlíka verkefni er annars vegar. Að því sögðu vill nefndin ekki standa í vegi fyrir málinu og leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.