148. löggjafarþing — 54. fundur,  24. apr. 2018.

lax- og silungsveiði.

215. mál
[19:18]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Njáll Trausti Friðbertsson) (S):

Frú forseti. Hér er mælt fyrir nefndaráliti atvinnuveganefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, með síðari breytingum. Þetta frumvarp fjallar um stjórn á álaveiðum. Meginregla gildandi laga um lax- og silungsveiði er sú að álaveiðar eru heimilar allt árið. Með frumvarpinu er lagt til að bætt verði við lög um lax- og silungsveiði ákvæði sem veiti ráðherra heimild til að setja reglur sem banna eða takmarka veiðar á ál um allt land eða á tilteknum svæðum ef það er talið nauðsynlegt að mati Hafrannsóknastofnunar.

Frumvarpið byggist á því að stærð álastofnsins hafi minnkað mjög og það mikið að frá árinu 2009 hafi áll verið á lista yfir tegundir dýra og plantna í útrýmingarhættu. Fram kom við umfjöllun um málið að álaveiðar séu bannaðar nær alls staðar í heiminum og leggst m.a. Alþjóðahafrannsóknaráðið gegn veiðum á ál meðan svo er ástatt fyrir stofninum.

Um það var rætt í nefndinni að nú þegar séu til staðar heimildir í lögum til að takmarka veiðar en nefndin tekur undir það sem fram kemur í athugasemdum við frumvarpið, að bann eða takmörkun á álaveiðum verði að byggjast á skýrri lagaheimild sem nær til þessarar tegundar. Einnig áréttar nefndin það sem fram kemur í athugasemdum við frumvarpið að bann eða takmörkun á veiðum verði að byggjast á vísindalegum grunni og vera vel rökstutt. Nefndin telur eðlilegt að stofninn verði rannsakaður betur og að fram fari vöktun þar sem það á við svo unnt verði að styðjast við bestu fáanlegu þekkingu hverju sinni.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir nefndarálitið skrifar öll atvinnuveganefnd, Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður, Njáll Trausti Friðbertsson, Inga Sæland, Halla Signý Kristjánsdóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Ásmundur Friðriksson, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Sigurður Páll Jónsson og Álfheiður Eymarsdóttir.