fjárveitingar til SÁÁ.
Virðulegi forseti. Að vanda þakka ég hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu brýna samfélagsverkefni. Ég held að það skipti máli, þegar þessi mál eru rædd, að halda öllu verkefninu undir. Það dugar ekki að hugsa bara um meðferðarúrræðin heldur þurfum við ekki síður að gæta að forvörnum.
Það hefur verið mjög ofarlega í mínum huga að undanförnu að við þurfum að efla umtalsvert forvarnir og stuðning við börn og ungmenni þegar að því kemur að skilja hvaða hættur eru á ferðinni, sérstaklega hvað varðar notkun á lyfseðilsskyldum lyfjum. Þar höfum við séð algjöra kúvendingu og breytingu á neyslu barna og ungmenna sem við verðum að bregðast hratt og örugglega við og sennilega með einhvers konar þjóðarátaki eða heildarátaki til þess að efla vitund þeirra sem þar eru í hættu.
Ég hef átt samtöl, m.a. við fjölskyldu Einars Darra, en sú fjölskylda hefur verið í fylkingarbrjósti í því að efla meðvitund í samfélaginu og hefur af eigin afli hitt gríðarlegan fjölda af börnum og ungmennum í framhaldsskólum. Þau hafa meira að segja einsett sér það sem áætlun að hitta hvern einasta bekk á Íslandi, hvern einasta bekk í framhaldsskólum á Íslandi til að ræða þessi mál maður á mann, því að þau telja að það skipti máli, þ.e. að í forvörnum þurfum við að horfast í augu við fólk og tala saman og að þessi hefðbundnu átaksverkefni dugi ekki.
Af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um SÁÁ hef ég þar sérstakar áhyggjur af unga fólkinu, þeim hópi sem SÁÁ hafa sagt að þau vilji ekki lengur taka á móti, þ.e. fólk sem er undir 18 ára aldri. (Forseti hringir.) Þess vegna höfum við sett það mál í algjöran forgang en með það að leiðarljósi að hjá SÁÁ er gríðarlega mikil sérfræðiþekking í þeim efnum.