149. löggjafarþing — 17. fundur,  10. okt. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Borist hafa bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 79, um meðferðarheimilið í Krýsuvík, og á þskj. 85, um lyfið Naloxon, báðar frá Söru Elísu Þórðardóttur.

Einnig hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 64, um orkupakka ESB, eftirlitsstofnanir sambandsins og EES-samninginn, frá Óla Birni Kárasyni.