149. löggjafarþing — 20. fundur,  16. okt. 2018.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 111, um viðveru herliðs á Keflavíkurflugvelli, frá Andrési Inga Jónssyni. Einnig hefur borist bréf frá félags- og jafnréttismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 142, um fæðingarorlof og heimabyggð fjarri fæðingarþjónustu, frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.