149. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2018.

svar við fyrirspurn.

[10:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Eins og forseti nefndi í gær grennslaðist hann fyrir um svör við fyrirspurn hv. þm. Þorsteins Sæmundssonar til félags- og jafnréttismálaráðherra á þskj. 163, um sölu fullnustueigna Íbúðalánasjóðs, sem þingmaðurinn gerði að umtalsefni undir liðnum um fundarstjórn forseta í gær. Forseti hefur þær upplýsinga að svar ráðuneytisins liggur fyrir í drögum en ráðherra hefur talið sér skylt að leita álits Persónuverndar á því hvort heimilt sé að opinbera þær upplýsingar sem beðið er um á þingskjalinu.