149. löggjafarþing — 35. fundur, 21. nóv. 2018.
fjárlög 2019.
1. mál
Herra forseti. Miðflokkurinn leggur hér fram breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið um sérstaka fjárveitingu upp á 70 millj. kr. til heilsugæslunnar á landsvísu til að auka heilsueflingu aldraðra. Málið er brýnt að mati landlæknis og er liður í því að bregðast við bráðavanda vegna biðlista eftir hjúkrunarheimilum.