ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég skil vel að hv. þingmaður skuli þurfa heim til að sinna sínum fallega syni. En ég verð hér í fyrramálið líka þannig að við getum haldið áfram að ræða þetta þá.
Hvað mundi duga mér? spyr hv. þingmaðurinn. Það er ef þetta mál yrði sent til sameiginlegu EES-nefndarinnar og út úr því samtali eða þeim viðræðum kæmi fyrirvari frá Evrópusambandinu sjálfu sem kvæði á um að við þyrftum ekki að uppfylla þetta og hitt. Það mundi nægja mér. En fyrirvari sem byggist á tveggja manna tali orkumálastjóra Evrópusambandsins og hæstv. utanríkisráðherra, með mikilli virðingu fyrir þeim báðum, ég veit ekki hvort þetta var símtal eða spjall yfir samloku og sódavatni: Þetta er ekki lögformlegur fyrirvari, alla vega þannig að hann nægi þeim sem hér stendur. Þannig er það.
En lögformlegur fyrirvari frá Evrópusambandinu að undangengnu samtali í sameiginlegu nefndinni mundi duga vel.