ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Nú er það þannig að margir, eða einhverjir, hafa lýst þessum fyrirvara þannig að hann sé eingöngu til heimabrúks, eða lýst honum sem sjónhverfingu eða blekkingu. Ég held að það megi nokkuð til sanns vegar færa þar sem innan Evrópusambandsins og í EES-samningnum gilda evrópsk lög, eða þau lög sem þar eru sett, ekki íslensk lög. Þannig að þessi fyrirvari er eingöngu fyrir okkur til þess að okkur geti liðið betur.
Enda er það þannig að með því að innleiða þær gerðir sem þarna á að innleiða er verið að innleiða markmiðin, það er verið að innleiða hugmyndafræðina, verkfærin sem lúta að því að þessi sameiginlegi og samtengdi orkumarkaður geti unnið og starfað.
Eða er hv. þingmaður ekki sammála því að það sé raunin? Það er verið að innleiða það „system“ sem Evrópusambandið hefur reynt að búa til mjög lengi?