ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Sér er nú hver dónaskapurinn sem hv. þingmaður sem forsætisráðherra sýndi David Cameron. Það er alveg nýr flötur á dónaskap að þegar maður er ósammála einhverjum setji maður af stað vinnuhóp til að skoða tillögur viðkomandi. Þetta er algjörlega ný gerð af dónaskap sem enginn hefur heyrt um. Ég verð að viðurkenna að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er með allra kurteisustu mönnum ef hans leið til að sýna dónaskap er að setja af stað vinnuhóp til að skoða hugmynd sem hann er á móti af því að það henti ekki hans þjóð.
Virðulegi forseti. Þetta stenst ekki skoðun. Hv. þingmaður hittir forsætisráðherra Breta og þeir ákveða saman að setja á fót starfshóp til að skoða sæstreng. Það er það sem gerðist. Og ég verð að viðurkenna að mér þykir eitthvað hafa lagst lágt fyrir kappann ef hann vildi ekki gera þetta en gerði það samt af því að hann var á móti. Ef svo er þá er það alveg nýr flötur á málinu. Það þýðir að hv. þingmaður á mjög erfitt með að standa í lappirnar. Ef hann var á móti því að sæstrengur yrði skoðaður þá átti hann bara að segja það en ekki skipa starfshóp og allra síst að setja í sinni tíð sæstrenginn á PCI-listann.
Hv. þingmaður sagði að ég hefði vísað í heimasíðu utanríkisráðuneytisins. Hvað var það sem ég var að vísa í, virðulegur forseti? Ég var að vísa í áréttingu sérfræðinga vegna þriðja orkupakkans. Hvaða sérfræðingar voru það, virðulegur forseti? Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson Hirst. Hv. þingmaður segir að hér hafi ég verið að vísa í heimasíðu utanríkisráðuneytisins.