150. löggjafarþing — 4. fundur,  13. sept. 2019.

lengd þingfundar og fyrirkomulag fjárlagaumræðu.

[09:31]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Samkomulag er um það milli forseta og þingflokksformanna að þingfundur geti staðið lengur en til kl. 20, þ.e. þar til síðari hluta umræðu um fjárlög 2020 er lokið. Augljóst er að það verður ekki fyrir kl. 20 í kvöld.

Ráðherrar gera nú grein fyrir sínum málaflokkum og taka þátt í umræðum um þá. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Ráðherrar hafa fimm mínútur til framsögu. Svo getur einn þingmaður frá hverjum þingflokki beint fyrirspurn til ráðherra og hefur til þess tvær mínútur tvisvar sinnum. Þó geta þingflokkar ákveðið að tveir þingmenn tali frá flokki og fái þá aðeins tvær mínútur hvor. Andsvör verða ekki leyfð.

Röð ráðherranna verður eftirfarandi: Forsætisráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, dómsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, utanríkisráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, félags- og barnamálaráðherra og að síðustu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Við lok umræðunnar hefur fjármála- og efnahagsráðherra allt að tíu mínútur til að ljúka umræðunni og verður þá réttur til andsvara rýmkaður svo að fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka geti veitt andsvör við ræðu ráðherra.

Forseti vill einnig beina þeim eindregnu tilmælum til hv. þingmanna og hæstv. ráðherra að þeir virði tímamörk. Það er langur dagur fram undan og forseti mun því ekki sýna mikið umburðarlyndi ef menn fara fram yfir umsaminn ræðutíma.