sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og ég held að við séum eiginlega komnir á svolítið skrýtinn stað vegna þess að ef við förum að hugsa þetta þurfum við eiginlega að skipta þessu eftir íbúafjölda. Ef við tökum bara 200 manna sveitarfélag eru 10% af því 20 manns, 1% af því væru tveir. En ef við erum komin yfir í 20.000 manna sveitarfélag erum við með 2.000. Og 1% af því eru 200. Þannig að erfiðleikarnir eru mun meiri í stærra sveitarfélaginu við að ná þessu fram. Þannig að ég myndi spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála því að þarna þyrftum við eiginlega að miða við ákveðinn fjölda. Hversu margir þyrftu það að vera? Ég myndi segja ekki prósent heldur þurfum við bara að hafa tölur um hversu marga þurfi fyrir tiltekna stærð sveitarfélags. Ég held að það yrði mjög gott fyrir lýðræðið og alla því auðveldara sem það væri og því meiri umræða sem verður, því betra og því upplýstari verða viðkomandi einstaklingar í þessum sveitarfélögum. Oft gleymist að það þarf að upplýsa íbúana mun betur. Þess vegna held ég að það væri bara hið besta mál að koma þessu í góðan farveg.