150. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2019.

störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Hún er áhrifamikil og því miður sorgleg, frásögn Margrétar Lilju á Facebook-síðu sem heitir Við erum hér líka — Huldufólkssögur úr nútímanum. Margrét Lilja er 22 ára ung kona sem stundar nám í félagsfræði við háskólann. Hún er í hjólastól. Margrét Lilja á, rétt eins og annað ungt fólk, sína drauma og þrár, ung kona í blóma lífsins sem vill ekki vera í hjólastól, er það samt og á engan annan kost. Hún rekst daglega á veggi í samfélagi sem kallar sig á hátíðarstundum réttlátasta og jafnasta ríki veraldar. Frásögnin ber yfirskriftina: „Halló, heyrir einhver í mér?“ Þar skírskotar hún til fordóma, þöggunar, skeytingarleysis og bjargarleysis sem öryrkjar eru látnir glíma við í daglegu lífi. Margt af því er óþarfi sem stafar ýmist af hugsunarleysi, metnaðarleysi, skilningsleysi eða skorti á orðheldni okkar sem störfum í stjórnmálum.

Ég ætla ekki að reyna að telja allar ræðurnar sem hér hafa verið fluttar um þessi mál á þingi en flest virðumst við vera á einu máli. Samt heyrum við af dæmum sem eru fullkomlega óboðleg og reiknast af tvennu illu vonandi frekar sem hirðuleysi af okkar hálfu en mannvonska.

Stjórnmálamönnum eru auðvitað ýmis takmörk sett. Við getum ekki komið í veg fyrir að fólk veikist, verði dapurt eða líði stundum illa, en það er á okkar valdi að skapa aðstæður sem gera öllum mögulegt að lifa með reisn og vera stolt, að allir geti elt drauma sína, tekið þátt í daglegu lífi, skemmt sér, stundað nám án þess að sífellt sé verið að bregða fyrir það fæti eða beinlínis hindra fólk og útiloka, hvort sem það er vegna ómanneskjulegra reglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna eða af hreinu skeytingarleysi.

Ég spyr því hv. þingmenn fyrir hönd þessarar ungu og kjarkmiklu konu: Halló, heyrum við í henni?