150. löggjafarþing — 32. fundur,  14. nóv. 2019.

orðspor Íslands í spillingarmálum.

[10:38]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það er ekkert nýtt að við hyggjumst tryggja eftirlitsstofnunum það fé sem þarf til að sinna því hlutverki sem við höfum falið þeim. Það munum við gera í þessu máli eins og við höfum gert í öðrum málum. Hér er grái listinn nefndur. Má ég vekja athygli hv. þingmanns á því að það er til annar listi sem heitir svarti listinn? Grái listinn er fyrir þau lönd sem eru til athugunar vegna þess að þau hafa ekki uppfært lög og sett í farveg verkferla sem kallað er eftir. Gráa listunin er ekki dæmi um spillingu á Íslandi, hv. þingmaður, þú ert bara í ruglinu með þá nálgun á það mál. (Gripið fram í.) Það er sömuleiðis algjör þvæla í mínum huga að segja að það sé íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu að kenna hvernig atburðarásin hefur verið í þessu tiltekna máli. Því verður ekki haldið fram um þessa ríkisstjórn að hún ætli ekki að taka þetta mál alvarlega. En við ætlum að fara í rótina, þangað sem rétt er einbeita sér.

Það kemur ekki á óvart að Samfylkingin sé strax komin út í skurð, (Forseti hringir.) talandi um að íslenska fiskveiðistjórnarkerfið (LE: … fiskveiðistjórnarkerfið.) sé vandamálið og svo heyrir maður líka — ég hef víst heyrt talað um fiskveiðistjórnarkerfið — (Gripið fram í.) og svo er auðvitað ein lausn sem Samfylkingin kemur alltaf með í öllum málum, að hækka skatta. (Gripið fram í.)

(Forseti (SJS): Þessum orðaskiptum er lokið. Framhaldið verður að vera frammi í matsal.)