fjárlög 2020.
Herra forseti. Þetta fjárlagafrumvarp er hið þriðja í röðinni hjá núverandi ríkisstjórn og sem fyrr er það ekki í samræmi við það sem var lofað fyrir kosningar. Hér var ekki sagt fyrir kosningar að framhaldsskólarnir ættu að fá niðurskurð. Hér var ekki sagt fyrir kosningar að Landspítalinn yrði látinn ganga í gegnum umfangsmiklar aðhaldsaðgerðir. Hér var ekki sagt fyrir kosningar að öryrkjar yrðu látnir bíða enn eitt árið eftir réttlæti. Hér var ekki sagt fyrir kosningar að það stæði til að skera niður endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar um 30%. Hér var ekki sagt fyrir kosningar að skorið yrði niður í framlögum á milli ára til Tækniþróunarsjóðs, Innviðasjóðs, Lýðheilsusjóðs, Sprotasjóðs, Rannsóknarsjóðs og jafnvel til Jafnréttissjóðs. Ekki var heldur sagt fyrir kosningar að hér ætti að lækka fjárframlög til hjálpartækja, til endurhæfingarþjónustu, til skógræktar, til verndaðra vinnustaða og til almennrar löggæslu eins og gert er í þessu fjárlagafrumvarpi. Og hvenær sögðu Vinstri græn fyrir kosningar að hér ætti að lækka veiðileyfagjöld um meira en helming á kjörtímabilinu? Sú yfirlýsing fór a.m.k. fram hjá mér.
Nú þegar samdráttur er hafinn í hagkerfinu er enn brýnna en áður að vel sé gætt að innviðum samfélagsins og jöfnuði. Samfylkingin hefur áður bent á að hlutverk stjórnvalda sé að tryggja bæði efnahagslegan og félagslegan stöðugleika. Þetta fjárlagafrumvarp tryggir því miður hvorugt. Það þarf ekki að hlusta á okkur í Samfylkingunni frekar en menn vilja en hlustið, kæru þingmenn, á þá hagsmunaaðila sem hafa sagt það sama. Hlustið á Öryrkjabandalagið, Félag eldri borgara, Alþýðusamband Íslands, BSRB, BHM, þetta eru allt lykilaðilar í þessu samfélagi sem gefa þessu fjárlagafrumvarpi falleinkunn. Þetta eru aðilar sem eru ekki í flokkapólitík. Þetta eru samtök sem eru að berjast fyrir betra velferðarkerfi og þessir aðilar sjá ekki þann rósrauða lit sem hv. þingmenn stjórnarflokkanna telja að einkenni þetta frumvarp.
Herra forseti. Ríkisstjórnin ætlar hvorki að ráðast í nauðsynlegar fjárfestingar í innviðum samfélagsins eins og var marglofað í síðustu kosningum né í nauðsynlega tekjuöflun fyrir hið opinbera. Þetta kemur allt niður á velferðarkerfi okkar allra. Samfylkingin hefur því lagt til breytingartillögur við fjárlagafrumvarpið upp á 20 milljarða. Samfylkingin leggur til að við gerum fjárlögin framsæknari og réttlátari. Tillögurnar snúa annars vegar að því að sækja fram á sviði menntunar, nýsköpunar og loftslagsmála og hins vegar að því að verja velferð almennings, barnafjölskyldur, heilbrigðisþjónustu, bæði inni á Landspítalanum en ekki síst úti á landi. Ég get nefnt að það voru ekki síst heilbrigðisstofnanir úti á landi sem bentu á að hér væri verið að þrengja að. Þetta eru allt tillögur sem myndu bæta þetta fjárlagafrumvarp til muna og eru að fullu leyti fjármagnaðar en því miður grunar mig að þær verði allar felldar, eins og þingmenn Vinstri grænna, Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins hafa ætíð gert við fyrri fjárlög. Ætla þessir þingmenn að greiða atkvæði í dag gegn tillögu okkar um aukin framlög til héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóra vegna Samherjamálsins? Munu þeir greiða atkvæði gegn þeirri tillögu? Ætla þingmenn stjórnarflokkanna að greiða atkvæði gegn auknum framlögum til Landspítalans, framhaldsskólanna, heilbrigðisstofnana úti á landi og til loftslagsmála? Ætla þessir sömu þingmenn að kjósa gegn tillögum Samfylkingarinnar um fjármuni til SÁÁ sem er nú að kljást við sína lengstu biðlista í sögunni?
Herra forseti. Verkin tala en því miður draga þau upp dökka mynd af því sem er að finna í þessu næstsíðasta fjárlagafrumvarpi þessarar ríkisstjórnar, sem er vonandi að hefja sitt allra síðasta ár.