150. löggjafarþing — 32. fundur, 14. nóv. 2019.
fjárlög 2020.
1. mál
Herra forseti. Það er ekki oft sem við í Viðreisn erum sammála Miðflokknum en hér erum við hjartanlega sammála. Það vantar alla ráðdeild í opinberan rekstur og við styðjum heils hugar þessa tillögu um viðbótaraðhaldskröfu á hið opinbera.