fjölmiðlar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessi svör. Ég verð að viðurkenna að við erum komnir háskalega nálægt því sem er kallað samsvör og er bannað í þessum þingsal en af því að við erum mislitir — enn þá — sleppur þetta kannski. Enn tek ég undir með hv. þingmanni, ég er fyllilega sammála honum um að það að skipa nefnd þriggja „valinkunnra manna“ til þess að fara í gegnum umsóknir um styrki finnst mér fullkomlega út í hróa hött. Ég sé fyrir mér að menn sitji yfir kaffi og snittum einu sinni í mánuði og blaði í umsóknum frá Bylgjunni, Stundinni og héraðsfréttablaðinu Feyki á Sauðárkróki og muni, eins og stendur í Biblíunni, „þaðan koma að dæma lifendur og dauða“, með leyfi forseta. Ég tek undir með þingmanninum, mér finnst þetta mjög varhugavert.
Þar sem hv. þingmaður talaði um að ríkisstarfsmenn væru að stjórna öllu í Efstaleitinu dettur mér í hug að spyrja hv. þingmann hvort honum þyki kannski eitthvað benda til þess að svo sé þegar einn ágætur annaðhvort starfsmaður eða verktaki RÚV hótaði byltingu á samfélagsmiðlum um daginn ef væntanlegur óráðinn útvarpsstjóri yrði af einhverjum pólitískum lit sem honum hugnast ekki. Er þetta hlutverk sem starfsmenn ohf. uppi í Efstaleiti eiga að hafa, þ.e. að leiðbeina stjórn stofnunarinnar og/eða hóta henni eða lofa ofbeldi ef eitthvað slíkt gerist? Hvað þykir þingmanninum um þetta?