fjáraukalög 2020.
Frú forseti. Hlutabótaleiðin er jákvæð leið en hún var í fyrri pakka. Við erum að tala um þennan pakka og það er afskaplega lítið í þessum pakka sem stuðlar t.d. að því að búa til ný störf. Af hverju ekki að fjölga opinberum störfum? Það bæði þarf og væri skynsamlegt í þessu ástandi. Það er merkilegt að einu nýju störfin í þessum pakka séu sumarstörf. Ég ætla ekki að gera lítið úr þeim en ég get svo sannarlega fullyrt úr þessum stól að fólk bjóst við meiru en hér má finna.
Mig langar að kalla eftir svari varðandi fjölmiðlana. Hæstv. ráðherra má endilega svara því hvort þessar 350 millj. kr. séu í viðbót við þær 400 millj. kr. sem nú þegar liggja fyrir í fjárlögum. Hvað gerist ef meiri hluti nefndarinnar sem er að skoða það mál afgreiðir það ekki frá sér? Erum við að tala um 750 millj. kr. til fjölmiðla eða er jafnvel hugsunin að lækka þessar 400 milljónir niður í 350 milljónir? Þetta skiptir mjög miklu máli. Allir fjölmiðlar landsins eru að kljást við afskaplega erfiða stöðu og við þurfum að fá skýr svör úr þessum stóli um hug ríkisstjórnarinnar til fjölmiðla hvað þetta varðar.