150. löggjafarþing — 101. fundur, 11. maí 2020.
fjáraukalög 2020.
724. mál
Virðulegur forseti. Örstutt. Ég sneri við tölum þegar ég var að mæla fyrir breytingartillögunni áðan. Þetta eru 3.300 mánuðir af störfum miðað við framlögin en ekki 3,3 milljarðar. Þetta er sem sagt 1 milljarður í fjárframlög fyrir 3.300 mánuði af framlögum í Nýsköpunarsjóð námsmanna.