150. löggjafarþing — 114. fundur,  8. júní 2020.

lengd þingfundar.

[15:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um, ef á þarf að halda. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta?

Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta og kemur hún til atkvæða að afloknum liðnum Óundirbúnar fyrirspurnir.