151. löggjafarþing — 2. fundur,  1. okt. 2020.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:55]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Forseti. Kæru landsmenn. Á þessum skringilegu tímum verður gangverk samfélagsins nánast áþreifanlegt, hvert tannhjól hefur áhrif á það næsta og lítil bilun, jafnvel í því smæsta, slævir gangverkið allt. Sjaldan hefur mikilvægi ríkisvaldsins og sterkrar almannaþjónustu birst með jafn skýrum hætti og aldrei augljósara að heilbrigt samfélag þarf að byggja á öflugri samneyslu, jöfnuði, fjölbreytni og þátttöku allra. Hugmyndir hægri manna um að reglulítill markaður greiði sjálfur úr vandamálum sínum og skili þar að auki almenningi réttmætum gæðum, dæma sig einfaldlega sjálfar. Nú eru það lausnir jafnaðarstefnunnar sem eru mikilvægastar í baráttunni við hamfarahlýnun og ríkisstjórnir úti um allan heim, jafnt til vinstri og hægri, líta til þeirra kinnroðalaust.

Í heimsfaraldri og sögulegu atvinnuleysi getur almenningur á Íslandi reitt sig á jafnaðarstefnuna. Það getur hún líka í baráttunni gegn hamfarahlýnun. Með samtakamætti getum við tekist á við vandamálin fram undan en til þess þarf pólitískan kjark og skýra framtíðarsýn. Á næstu dögum mun Samfylkingin leggja fram heildstæða áætlun um hvernig Ísland getur brotist út úr atvinnuleysiskreppunni til móts við grænni framtíð. Hún byggir á þremur stoðum; vinnu, velferð og grænni uppbyggingu.

Ábyrga leiðin út úr atvinnuleysiskreppunni felst í því að fjölga störfum hratt, bæði í einkageiranum og hinum opinbera, um allt land, efla velferð og reisa nýjar grænar stoðir til framtíðarverðmætasköpunar. Við þurfum að ráðast í markvissari vinnumarkaðsaðgerðir, taka vel utan um atvinnuleitendur og gera fyrirtækjum kleift að ráða til sín fólk, koma til móts við sveitarstjórnir landsins og verja störfin þar en umfram allt vernda nærþjónustu fólksins. Við þurfum að fjárfesta í heilbrigðisþjónustu og menntun. Við þurfum að gera atlögu að undirmönnun almannaþjónustunnar. Það skiptir miklu máli. Síðast en ekki síst þurfum við að stíga miklu fastar til jarðar í baráttu gegn hamfarahlýnun. Við núverandi aðstæður dugar nefnilega ekkert minna en raunverulega græn atvinnubylting. Það er ódýrt að heyra forsætisráðherra tala um græna byltingu þegar hún leggur sama dag fram fjárlög og fjármálaáætlun sem gefa engin fyrirheit um slíkt. Það er ekki græn bylting þegar Ísland setur veikari loftslagsmarkmið en Danmörk og Noregur. Það er ekki græn bylting þegar við losum meira og meira á vakt þessarar ríkisstjórnar á hverju ári. Það eru ekki græn bylting þegar ríkið ver minna en 1% af vergri landsframleiðslu til loftslagsaðgerða.

Abraham Lincoln sagði að besta leiðin til að spá fyrir um framtíðina væri að skapa hana og nú þurfum við einfaldlega að hafa kjark til þess. Átak íslenskra stjórnmála næsta árið þurfa að snúast um hvert við stefnum. Rétta leiðin, ábyrga leiðin, felst í því að ráðast strax í kraftmikla græna fjárfestingaráætlun, aðgerðir sem vinna gegn hamfarahlýnun en skapa um leið atvinnu og verðmæti fyrir okkur öll. Græn atvinnubyltingu er rétta svarið við atvinnuleysinu sem sogar núna máttinn úr samfélaginu. Lánakjör ríkisins eru hagstæð og nú er tími til að fjárfesta duglega í hugviti, nýsköpun, þróun, umhverfisvænni atvinnusköpun, grænni matvælaframleiðslu og orkuskiptum og stórum fjárfestingum í almenningssamgöngum. Þetta verður að gera strax.

Kæru landsmenn. Ég er sannfærður um að við getum skapað betra og sterkara velferðarkerfi á Íslandi þar sem ekkert barn fer svangt að sofa. Þar sem húsnæðisöryggi er jafn sjálfsagður hlutur og aðgangur að vatni og lofti. Þar sem matarkarfan er ódýrari og gjaldmiðillinn stöðugri. Þar sem atvinnulausir, öryrkjar og gamalt fólk þarf ekki að lifa í kvíða frá degi til dags en líka þar sem hvers kyns mismunun er hafnað og börnum á flótta er veitt skjól. Það er samfélag sem einkennist af mannúð og sjálfbærni, jöfnuði og frelsi. En þannig samfélag sköpum við ekki nema við séum með réttláta skattbyrði og minnkum ójöfnuð. Þannig samfélag sköpum við heldur ekki nema við virðum niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá, aukum alþjóðasamvinnu og tryggjum að þjóðin fái réttmætan arð af auðlindum þjóðarinnar og aldrei nema við sýnum meiri metnað í loftslagsmálum.

Kæru landsmenn. Við stöndum nú frammi fyrir óvenju flóknum verkefnum sem verða ekki leyst öll á einni svipstundu. En fyrsta skrefið er að skipta um kúrs, snúa skútunni frá hægri og hrista af okkur gamaldags kreddur um hvernig ríkisfjármál virka og hvernig verðmæti verða til. Á svona tíma höfum við einfaldlega ekki efni á því að leyfa hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins eða fjármálastefnu hægri manna að ráða för. Það er einfaldlega allt of mikið í húfi. Þess vegna er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við sem höfum önnur gildi, trúum á aðra leið, séum ábyrg og staðföst og vinnum saman, snúum bökum saman. Það er hlutverk Samfylkingarinnar á þessum stundum að leiða saman þau öfl sem eru tilbúin að fylkja sér um vinnu, velferð og græna framtíð og mynda græna félagshyggjustjórn eftir næstu kosningar.