vernd, velferð og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum .
Herra forseti. Ég held að við þurfum að vera alveg skýr með það hvaða aðila við erum að tala um. Náðist ekki niðurstaða milli ráðuneyta eða náðist ekki niðurstaða milli þeirra pólitísku ráðherra sem stýra þeim? Er sem sé ágreiningur á milli stjórnarflokkanna um að fara að faglegri ráðleggingu þeirra höfunda sem standa að baki villdýraskýrslunni, og er þar með grafið undan því sterka verkfæri sem villidýralögin geta verið í þágu dýraverndar? Ég nefni bara nokkur atriði. Við erum ekki bara að tala um einhverja friðun á dýrum þó að það eigi við um selinn sem er á válista Náttúrufræðistofnunar. Við erum líka að tala um að setja hvalaskoðunarfyrirtækjum einhverjar skorður varðandi það hvernig þau umgangast stórhveli á skoðunarstað. Þessi eyða í íslensku lagasafni er til verulegra vandræða í eðlilegri umgengni um þessa dýrastofna.
Er það virkilega svo, herra forseti, að það sé pólitískur ágreiningur á milli ráðherra sjávarútvegsmála og ráðherra umhverfismála að geta ekki náð saman um þennan sjálfsagða hlut?