151. löggjafarþing — 60. fundur,  25. feb. 2021.

fjármálafyrirtæki.

7. mál
[13:44]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér erum við að gera mikilvæga breytingu á umhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja. Við erum að skilja að að hluta fjárfestingarbankastarfsemi og viðskiptabankastarfsemi. Mikil vinna hefur farið fram í aðdraganda þessa frumvarps og hvítbókin bendir á þessa leið sem meiri hlutinn leggur til. Mikilvægt er að taka þetta skref. Þetta mun skipta máli fyrir íslenskt fjármálakerfi og Vinstri græn styðja þessa breytingu.