151. löggjafarþing — 90. fundur,  5. maí 2021.

störf þingsins.

[13:09]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna það að sú mikla umræða sem hér hefur farið fram undanfarinn sólarhring um málefni innflytjenda gengur fram af mér. Þetta er gott mál sem er verið að leggja fram með yfirgnæfandi stuðningi hér á Alþingi. En það virðist vera að einn flokkur ákveði að leggja þetta mál upp þannig að það sé rétt að sá ótta og tortryggni gagnvart því við almenning í landinu. Þarna er verið að gera eitthvað sem er ekki gott í samhengi hlutanna. Staða hælisleitenda og flóttamanna er alþjóðavandi og við sem þjóð berum siðferðislegar skyldur til að taka okkar skerf og gera það sem við getum til að hafa þessi mál í sem bestu lagi hér heima. Það erum við að gera með því frumvarpi sem hér liggur fyrir um málefni innflytjenda. Við erum að tengja Fjölmenningarsetrið, sem hefur sinnt sínu hlutverki vel og hefur verið staðsett á Ísafirði, og víkka það núna inn á höfuðborgarsvæðið, það er verið að samræma móttöku kvótaflóttamanna og hælisleitenda og að Fjölmenningarsetur geti veitt sem bestar upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði til þeirra sveitarfélaga sem hafa verið að taka á móti kvótaflóttamönnum og auðvitað heilt yfir gagnvart innflytjendum hér á Íslandi. Við eigum að sýna þann þroska að geta gert þetta með almennilegum hætti og gera það sem best, við sem rík þjóð, en snúa þessu máli ekki á hvolf, að þarna sé einhver stórhætta á ferðinni, að við séum að opna fyrir óheftan flutning fólks hingað víðs vegar að úr heiminum. (Forseti hringir.) Við erum að samræma þessa þjónustu, vinna þetta af okkar bestu getu og eigum að gera það. (Forseti hringir.) Ég tel það vera skömm að tala þetta mál niður.