151. löggjafarþing — 90. fundur, 5. maí 2021.
loftferðir.
613. mál
Virðulegur forseti. Jú, það er fínt að málið fari aftur til umhverfis- og samgöngunefndar og þar skal ég gæta þess að þessara upplýsinga verði aflað. En eðlilegast þætti mér nú að stjórnarliðar myndu bara sofa á málinu, skoða það betur með ferskan haus í fyrramálið og átta sig á því að þetta mál á bara að fara í tætarann. Við þurfum ekkert að vinna meira í því í nefndinni.