íslensk landshöfuðlén.
Forseti. Ég vil greina frá afstöðu minni í þessu máli. Ég var ekki á nefndarálitinu með umhverfis- og samgöngunefnd vegna þess að mér finnst ákvæði til bráðabirgða I og II vera flókin. Þarna er verið að fara flókna leið, svokallaða forkaupsréttarleið, í staðinn fyrir að fara einfalda eignarnámsleið sem er margreynd og einföld að mörgu leyti. En þarna er farin mjög flókin leið forkaupsréttar og matsleið í framhaldinu, ef ekki semst um, sem er mjög flókin, illfær og getur valdið miklum tímaflækjum og málaferlum. Ég get ekki samþykkt þá tilraun sem þarna er gerð til að fara þessa nýju leið, forkaupsréttarleiðina, og verð gulur á þeim ákvæðum. Ég fellst hins vegar á að í frumvarpinu eru mikilvægir hagsmunir í húfi, öryggis- og almannahagsmunir, og mun því greiða öðru atkvæði mitt.