151. löggjafarþing — 98. fundur,  19. maí 2021.

um fundarstjórn.

[13:38]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég ætla að nota tækifærið undir þessum ágæta lið til að gera það sem ég var eiginlega búin að upplýsa að ég myndi gera og það er að koma hér daglega og minna á að nú eru liðnir fimm mánuðir og gott betur frá því að Alþingi óskaði eftir skýrslu frá hæstv. sjávarútvegsráðherra sem fæli í sér upplýsingagjöf til þingsins og til íslenskrar þjóðar um fjárfestingar stærstu útgerðarfyrirtækja landsins í atvinnurekstri sem er óskyldur sjávarútvegi. Ég á bara 20 sekúndur eftir þannig að ekki dugar að þylja upp þann lista sem ég veit að er til staðar. Það er ekki stórkostlega flókið verkefni að vinna þessa skýrslu. Ég veit það. Það getur hins vegar verið mjög flókið pólitískt úrlausnarefni fyrir ríkisstjórn þeirra þriggja flokka sem standa vörð um þetta fyrirkomulag, um getu stærstu útgerðarfyrirtækja okkar til að sölsa undir sig landið og miðin. En við bíðum og það eru liðnir fimm mánuðir (Forseti hringir.) og tveir dagar, á morgun fimm mánuðir og þrír dagar. En meira um það á morgun.