152. löggjafarþing — -1. fundur,  23. nóv. 2021.

tilkynning forseta.

[14:28]
Horfa

Aldursforseti (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir):

Forseta hefur borist bréf, dagsett 18. október 2021, svohljóðandi:

„Ég undirritaður, sem kosinn var á þing fyrir Miðflokkinn í síðustu alþingiskosningum, hef frá og með 8. október síðastliðnum gengið til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins.“

Bréfið undirritar hv. 9. þm. Suðurk., Birgir Þórarinsson.