152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

áhafnir skipa.

185. mál
[17:25]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um áhafnir skipa. Um er að ræða endurflutning á frumvarpi frá síðasta löggjafarþingi og er það lagt fram í nær óbreyttri mynd. Með frumvarpinu er gerð tillaga um ný heildarlög sem sameina ákvæði fernra laga sem eru í gildi í dag, þ.e. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa, laga um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, laga um lögskráningu sjómanna og loks laga um bryta og matreiðslumenn á farskipum og fiskiskipum.

Á grundvelli þeirra laga sem frumvarpinu er ætlað að koma í stað hafa síðan verið settar reglugerðir sem útfæra nánar þær kröfur sem gerðar eru til áhafna skipa. Innan samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, og þá í dag innviðaráðuneytisins, og Samgöngustofu er unnið að því að einfalda og uppfæra þetta regluverk í heild þannig að það sé aðgengilegra fyrir þá sem starfa eftir því.

Gera má ráð fyrir að verði frumvarpið að lögum megi fækka þessum reglugerðum úr 15 í tvær til fjórar. Yrði því um töluverða einföldun regluverks á þessu sviði að ræða og væntanlega auðveldara fyrir þá sem þurfa að fara eftir þeim að lesa þær og kynna sér efni þeirra.

Í gildi er víðtækt alþjóðlegt regluverk um áhafnir skipa sem byggist á samningum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar og Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem og ákvæðum gerða sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn. Efni frumvarpsins samrýmist þessum alþjóðlegu skuldbindingum.

Frumvarpið, sem skiptist í níu kafla, hefur það að markmiði að tryggja öryggi áhafna, farþega og skipa og efla varnir gegn mengun sjávar. Það hefur að geyma ákvæði um skírteini áhafna, lögskráningu sjómanna, mönnun skipa, vaktstöðu og vinnu- og hvíldartíma, ábyrgð útgerða og skipstjóra og loks eftirlit og viðurlög við brotum gegn ákvæðum þess.

Frumvarpið hefur jafnframt að geyma ákvæði um heimildir ráðherra til að setja reglugerðir, þar á meðal til innleiðingar á ákvæðum gerða á grundvelli EES-samningsins. Verði frumvarpið að lögum er lagt til að þau taki gildi 1. janúar 2023. Þannig munu útgerðir, sjómenn og aðrir hagsmunaaðilar hafa tíma til að kynna sér kröfur laganna og búa sig undir gildistöku. Jafnframt munu þá stjórnvöld hafa tíma til að uppfæra reglugerðir, einfalda eins og ég kom inn á áður, og önnur stjórnvaldsfyrirmæli áður en lögin taka gildi.

Virðulegi forseti. Með frumvarpi þessu eru ekki lagðar til umfangsmiklar efnislegar breytingar á ákvæðum gildandi laga en hér verður engu að síður fjallað um helstu breytingar sem frumvarpið felur í sér. Í fyrsta lagi er kveðið á um að tiltekin erlend skip geti fallið undir gildissvið laganna. Þar er átt við erlend skip sem notuð eru í atvinnuskyni á íslensku innsævi í 30 daga samfleytt eða samtals 90 daga á ársgrundvelli. Eðlilegt er talið að öryggiskröfur sem gilda um íslensk skip eigi einnig við um þau. Þetta ákvæði gæti t.d. átt við um áhafnir erlendra þjónustuskipa laxeldis, áhafnir dýpkunarskipa, dráttarskipa, farþegabáta og farþegaskipa í útsýnis- og skoðunarferðum.

Í öðru lagi er lagt til að undanþágunefnd og mönnunarnefnd skipa verði lagðar niður og verkefni þeirra fengin Samgöngustofu. Samgöngustofa hefur haft þessi verkefni með höndum hvað varðar farþegaskip, farþegabáta og flutningaskip frá því að lög um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutningaskipa tóku gildi 1. júlí 2001. Eðlilegt er að sama fyrirkomulag gildi að þessu leyti um undanþágur. Þá er einnig til þess að líta að ákvarðanir nefndanna eru kæranlegar til ráðherra og oftast eru kærendur jafnframt félagsmenn í þeim samtökum sem jafnframt eiga fulltrúa í nefndunum.

Í þriðja lagi er lagt til að kveðið verði skýrar á um lágmarksmönnun réttindamanna á smáskipum að teknu tilliti til útivistar þeirra, þ.e. skipa sem eru 15 m og styttri að skráningarlengd, þannig að fylgt verði svokallaðri 14 klukkustunda reglu á grundvelli 64. gr. sjómannalaga. Þegar útivist þeirra fer yfir 14 klukkustundir verði áskilnaður um að ávallt séu tveir skipstjórnarmenn um borð með tilskilin réttindi og geti þeir jafnframt gegnt störfum smáskipavélavarðar hafi þeir tilskilin réttindi til þeirra starfa. Hér er ekki um nýmæli að ræða en mikilvægt er að kveðið sé skýrt á um þetta í lögum. Það er mikilvægt að hvíldartímareglur séu virtar þannig að þeir sem standa útvörð og sigla séu ekki of þreyttir til að sinna sínu starfi. Samkvæmt upplýsingum rannsóknarnefndar samgönguslysa má rekja allt að 50 strönd smábáta frá árinu 2000 til þess að sá sem var við stjórn skipsins sofnaði vegna þreytu og vinnuálags og hefur nefndin margoft komið með tillögur til úrbóta í þessu efni.

Ljóst er að ekki eru allir á eitt sáttir með þessa reglu. Hefur m.a. komið fram sú gagnrýni að með þessu sé verið að útrýma einyrkjum. Er í frumvarpi þessu því lagt til undanþáguákvæði frá þessum reglum þegar eigandi skipsins er lögskráður sem skipstjóri og er einn um borð. Hér er jafnan um að ræða einstaklinga sem stunda ekki daglegar strandveiðar eða veiðar. Er hér horft til sambærilegrar reglu sem gildir í Noregi.

Í fjórða lagi er lagt til að krafa um að um borð í skipi sé matsveinn eða bryti verði miðuð við útivist skips en ekki stærð þess eins og gildir samkvæmt lögum um bryta og matreiðslumenn á farskipum og fiskiskipum.

Loks er í fimmta lagi lagt til að sett verði ákvæði um stjórnvaldssektir sem Landhelgisgæsla Íslands eða Samgöngustofa geti lagt á vegna brota á tilteknum ákvæðum laganna og reglum samkvæmt þeim. Ekki er gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi kostnaðarauka fyrir ríkissjóð í för með sér. Lítils háttar breytingar geta orðið á eftirfylgni með tilkomu heimildar til beitingar stjórnvaldssekta en ekki er gert ráð fyrir að heimildinni verði beitt í miklum mæli. Þá er ekki gert ráð fyrir að frumvarpið hafi veruleg áhrif á atvinnulífið verði það að lögum.

Rétt er að geta þess að við smíði þessa frumvarps hefur verið horft til áhrifa þess á jafnrétti. Þegar litið er til þess hverjir teljast í dag til áhafna skipa á Íslandi eru það mestmegnis karlmenn. Sjósókn er karllægur atvinnuvegur og mikill kynjamunur í allri vinnu tengdri greininni. Það er brýnt að jafna kynjahlutföllin á þessu sviði og er hægt að færa margvísleg rök fyrir því. Innan samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins er nú unnið að verkefninu Konur í siglingum sem er ætlað að draga úr þessum mun á þátttöku kynjanna í siglingum. Þá er rétt að benda á að orðfæri innan þessarar atvinnugreinar sem og laga og reglna sem um hana gilda er afar karllægt og er horft til þess að draga úr því eins og kostur er í frumvarpi þessu.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir helstu efnisatriðum þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umr.